Promens English
		<description>Promens</description>
		<language>en</language>
Daði innleiðir staumlínustjórnun hjá Promens Dalvík
Daði Jónsson hóf störf hjá Promens Dalvík í sumar og mun vinna að svokallaðri straumlínustjórnun, sem er gæðastjórnunarvinna sem er að ryðja sér rúms í fyrirtækjum víða í Evrópu en er nær óþekkt hér á landi. Daði er fæddur og uppalinn Dalvíkingur, sonur Jóns Gunnarssonar, eins af stofnendum Sæplasts. Daði vann á sínum tíma í framleiðsludeild Sæplast en flutti fyrir 12 árum til Bretlands þar sem hann starfaði hjá fyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu netkerfi og lausna sem þeim tengjast. Þar hafði Daði gæðamál með höndum og kynntist þá þeim fræðum sem straumlínustjórnun er. Hann segir litlar sem engar upplýsingar að finna um straumlínustjórnun hér á landi, þrátt fyrir að aðferðafræðin sú sé vel þekkt víða í Evrópu. "Til að mynda eru um 80% fyrirtækja í Bretlandi að nýta sér straumlínutjórnun til að bæta daglegan rekstur og ég reikna með að á komandi árum verði þessi fræði betur þekkt hérlendis. Í verksmiðjum Promens í Evrópu eru starfsmenn á sama sviði og ég hér á Dalvík þannig að við erum að vinna í sama takti og aðrir innan samstæðunnar. Enda er einmitt mikilvægt að við nýtum okkur þekkingu og reynslu hver hjá öðrum þannig að ekki þurfi að finna upp hjólið á hverjum stað fyrir sig," segir Daði Jónsson sem nú hefur sest aftur að á Dalvík með eiginkonu og tveimur börnum eftir áralanga búsetu í Bretlandi. 
Veðurspá septembermánaðar frá veðurklúbbnum
Veðurfræðingarnir á Dalbæ hafa sent frá sér spá fyrir septembermánuð og reikna þeir með ríkjandi landáttum í mánuðinum, gæti skúrað af og til fram að nýju tungli sem kviknar 11. september í hásuðri að þessu sinni. Síðari hluti mánuðarins ætti að verða þurrari og í heildina verður september nokkuð mildur. Klúbburinn sendir frá sér gangnakveðjur og eina vísu í lokin: 
Sauðir koma af fjalli feitir
menn fylla nestistöskuna. 
Gangnamenn fá gætt í leitir
og geta opnað flöskuna. 
Frétt af heimasíðu Dalvíkurbyggðar: www.dalvik.is 
Birkir Árnason lauk 86 km fjallahlaupi
    <description>Birkir Árnason kom í mark í Chamonix í Frakklandi um sjöleytið að morgni laugardags 25/08 og hafði þar með lokið 86 kílómetra fjallahlaupi sem liggur hálfan hring í kringum Mont-Blanc á tímanum 18:32.</description>
Sævaldur í söludeildina í stað Vals
Hrina vörusýninga að ganga yfir
    <description>Mikil sýningatörn hefur staðið yfir hjá söludeild Promens Dalvík að undanförnu. Síðustu helgina í apríl tók fyrirtækið þátt í sjávarútvegssýningunni í Brussel, því næst lá leiðin á kjötvinnslusýningu í Frankfurt, þar á eftir næst til Skotlands á sýningu sem helguð er veiðarfærum og búnaði og loks er fjórða vörusýningin í Moskvu nú í byrjun júnímánaðar. </description>